Skipulagsnefnd Garðabæjar hefur um nokkurt skeið unnið að deiliskipulagi fyrir Garðahverfi á Álftanesi. Meginmarkmið deiliskipulagsvinnunnar er að stuðla að varðveislu menningar- og náttúruminja á svæðinu og að Garðahverfi verði aðgengilegt til íhugunar, útivistar og náttúruskoðunar. Það verði skipulagt að öðru leyti í samræmi við sögulega sérstakt búsetulandslag og aldagamalt hlutverk svæðisins sem kirkju- og menningarstaðar. Garðaholt verði friðsæll staður sem ber vitni um tímans rás. Myndir af Garðahverfi Ef smellt er hér á "myndir" þá sjást myndir sem teknar voru af Garðahverfi sumarið 2009 í fallegu veðri og gefa athyglisvert sjónarhorn á byggðina. |
